Zapp og Kif

29. June, 2005

Þeir félagar Zapp og Kif er mættir í hús.

Sannleikurinn kom í ljós

28. June, 2005

Varðandi myndina mína sem ég sendi í fuglakeppnina á dpchallenge.com þá kom sannleikurinn loks í ljós og hann má finna hér.

Hahahha

27. June, 2005

Símon einn vandaðasti maður sem ég hef kynnst sagði Eiríkur Jónsson í fréttunum á stöð 2 um einn af blaðamönnum sínum. Svo er hann að tala um núna að þeir hafi ekki viljað birta mynd af einhverri konu án þess að fá leyfi hjá henni. Mér finnst þetta allt saman mjög fyndið. “Fjölmiðillinn verður að fá leyfi fyrir birtingu.” Ekki fékk Símon leyfi hjá mér að birta mynd sem hann stal af síðunni minni.

Brenglaða mál

27. June, 2005

Það er svo fyndið hvað íslenskan er farin að brenglast. Margir segja hellast úr lestinni í staðin fyrir heltast, reiðbrennandi í staðin fyrir reiprennandi og núna nýjast glóðurauga í staðin fyrir glóðarauga.

Ekkert fleira sem mér dettur akkúrat í augnablikinu.

Íslenska Bachelor

24. June, 2005

Sjitturinn titturinn. Íslenska Bachelor helveteð er að fara af stað. Hægt að skrá sig í þetta á S1.is. Núna hafa verið 5 þáttaraðir í bandaríkjunum og í öll skiptin hafa hjónin skilið eða hætt saman eitthvað eftir þættina. Þetta er augljóslega ekki að virka og hvernig dettur fólki því að fara í þetta. Þetta er greinilega ekki málið sambandi við að finna sér maka. En ég hef mikla trú á þessu íslenska. Þetta verður svo fyndið sjónvarpsefni að ég finn á mér að ég muni koma til með að pissa í buxurnar.

Spennandi líka að sjá hvort að maður muni koma til með að þekkja einhvern sem er í þessu. Er einhver að spá í að skella sér?

Lacie

23. June, 2005

Á leiðinni í hús til mín eru 2 stykki LaCie 500GB Big-Disk.

5 daga frí á enda

20. June, 2005

Síðasti dagurinn í dag á 5 daga vaktafríi. Hötum ekki 5 daga vaktafrí skal ég segja þér. Þetta er búið að vera gott frí. Fín ferð á Snæfellsnesið og svo bara tjill og smá vinna myndir inn á milli. Fór áðan í Tæknival og ætlaði að kaupa mér harðan disk. En þá voru allir stóru Lacie diskarnir búnir þannig að ég er að pæla að panta mér tvo 500gb diska af bhphoto.com. Ekki svo dýrt. Þyrfti samt helst að fá þessa diska í dag því það er allt að fyllast hjá mér.

Annars lenti ég í 2. sæti á dpchallenge.com í fuglakeppninni með þessa mynd. Nokkuð sáttur með það bara.

Er að velta fyrir mér að horfa á sjónvarpið og hafa það gott það sem eftir er dags.

Blindir á litinn

19. June, 2005

Ætli blindir finni á sér hvernig þeir eru á litinn?

Hestar, konur, karlar

19. June, 2005

Nú þekki ég ekki vel til hestaíþrótta. Ekki eitthvað sem ég hef gaman af. Sé engan mun á hoppi, brokki, slikki eða skeiði. Efast samt um að þessi hugtök séu öll til. En annað sem ég hef verið að velta fyrir mér. Er keppt í kvenna og karlaflokki? Og eru þá hestarnir konur og karlar? Þurfa konur að keppa á hryssum? Það væri gaman ef einhver gæti sagt mér hvernig þetta allt saman er. Takk fyrir.

Sirkus

19. June, 2005

24. júní opnar ný sjónvarpsstöð sem heitir Sirkus. Veit nú ekki mikið um þetta. Hefur alveg farið framhjá mér að ný stöð sé á leiðinni. En þetta hlýtur að vera eitthvað tengt SkjáEINUM þar sem að Sirkus.is fer inn á s1.is/sirkus. Veit einhver meira um þessa stöð og hvað verður á henni?

Næsta síða »
© Árni Torfason