Aviator

28. February, 2005

Er að horfa á Óskarinn með öðru á meðan ég er að vinna myndir. Aviator að rúlla þessu upp algjörlega virðist vera. Hef ekki séð hana. En planið er að gera það bráðlega.

Alltaf jafn fyndið að heyra hvað fólkið sem vinnur er með lélegar ræður og væmnar. Merkilegt.

Bráðum fer maður kannski að sofa. Góða nótt.

Ég er hættur í þessu liði!

25. February, 2005

RAssgat og helvíti. Sendi inn þessa mynd í Self Portrait keppni á dpchallenge.com og svona helmingurinn af fólkinu hélt að Clay Aiken væri mættur á svæðið. Ég er fjúríus. Svo benti einhver mér á þetta þar sem fólk er að ræða þetta. Ég segi það og meina… ég er hættur í þessu liði!

Þyrluflug

25. February, 2005

Það er ekki sniðugt að hoppa af gleði þegar maður er nýbúinn í þyrluferð.

Geisp

23. February, 2005

Er orðinn doldið þreyttur. Er að vinna myndir. Nóg að gera. Sé fram á kannski klukkutíma eða tvo til viðbótar. Ýmislegt sem ég verð að klára. Það verður nóg að gera í vinnslu næstu daga.

Og ég er svangur!

Food & Fun

20. February, 2005

Usssss… fimmtudagur til laugardags er búið að vera matur og skemmtun. Var að mynda í tengslum við Food & Fun hátíðina. Þannig að ég er búinn að vera að frá morgni til kvölds. Fór síðan í dag með Sigurjóni í smá leiðangur. Í för með okkur voru fjórir sveittir strákar. Enrique Iglesias, Christopher Lambert, Klaus hinn þýski og David Hasselhoff. Betur þekktir sem Lokbrá. Myndir voru teknar, snjór borðaður, sandi hent og þjóðverjum fórnað.

Í kvöld ætla ég að kíkja á xboxið mitt sem er löglegt. Ekki búinn að breyta því svo maður þurfi ekki að borga fyrir leiki. Það er ólöglegt og það geri ég ekki.

Starfsfólkið á Subway er upp til hópa fjáránlegt. Fór á subway áðan með Auði og piltur að nafni Sindri efaðist um að Auður hafi sagt 12 tommu bát. “Nú sagðirðu ekki 6 tommu”. Viðskiptavinurinn hefur alltaf rétt fyrir sér og haltu kjafti rassálfurinn þinn!

Góð skemmtun

17. February, 2005

Ef þið viljið góða skemmtun þá mæli ég eindregið með þessum þræði hérna á ljosmyndakeppni.is sem ég sagði skilið við fyrr í dag… sem sagt gær því klukkan er orðin allt of margt.

Það sem er fyndið er að lesa þvæluna í honum DanSig. Ég þarf ekkert að segja neitt um þetta. Verðið bara að lesa sjálf. Hann er með þeim allra allra allra furðulegustu manneskjum sem ég hef á ævi minn kynnst. Vitleysan sem getur komið upp úr einum manni… þetta nær engri átt.

Það væri hægt að gefa út heila bók með ógleymanlegum kommentum frá honum. Hamsturinn minn sálugi hafði meira á milli eyrnanna en þessi maður… og hamsturinn minn pissaði í matinn sinn og svaf síðan í honum.

Fjerðurinn bjákninglegi

17. February, 2005

Var að henda inn sjálfsmyndaseríunni minni inn á photos.mis.is. Á eftir að búa til link inn á síðunni sjálfri en þið getið komist inn á seríuna með því að smella á myndina hérna hægra megin.

Er að vinna í því að búa til fleiri albúm inn á photos.mis.is. Er að rúlla i gegnum gamlar myndir og flokka og vinna upp á nýtt. Hver veit nema að fleira læðist þarna inn á næstunni.

Smellti einni inn nýju albúmi hérna á síðuna. Þar má meðal annar finna myndina Caught Up sem hafnaði í fyrsta sæti í Pink keppninni á dpchallenge.com. Svo er einnig sjálfsmyndin sem ég er með í Self Portrait keppninni á dpchallenge.

Fátæki, ljóti, heimski maðurinn sagði: “bless”

Bitur

16. February, 2005

Ég virðist vera svo bitur þessa dagana. Held ég verði að leita til sálfræðings eða eitthvað. Þið sem þekkið mig vita hvað ég er bitur. Alltaf að bitrast eitthvað út í loftið. Var einu sinni bitinn af hamstrinum mínum. Kannski það sé ástæðan fyrir þessum stöðuga biturleika mínum.

Montrassálfur

15. February, 2005

þennan link inn á einhverja bílasíðuviðbjóð. Live 2 Cruz. Gerist ekki glataðra held ég. Allavega þarna byrjaði einhver þráð sem sem kallar sig Raggi M5 og þetta stóð:

“Langaði bara svona athuga að ganni mínu hvað sumir hérna inn hafa farið hraðast í bíl? Sem farðþegi og ökumaður og á hvernig bíl? ;)

Svo fer fólk eitthvað að metast þarna og segja hitt og þetta. Og hvort þau hafi verið undir stýri eða ekki. En svo kemur montrassinn hann Raggi M5 sem stofnaði þráðinn einungis til þess að geta komið seinna inn í umræðuna með mesta hraðann. Hann skrifar svona 10 póstum neðar:

“Ég hef farið hraðast í bíl sem ökumaður og það var á Bimmanum mínum setti hann í 270km/klst á Reykjanesbrautinni. ”

Afhverju sagði hann ekki bara strax í byrjun:
“Sjáiði mig sjáiði mig ég hef keyrt á 270 og er ógislega kúl. Enginn hefur örugglega farið hraðar en ég. Sjáiði mig sjáiði mig ég er bestur þið eruð kúkur. Ég er á live 2 cruz heimasíðunni. 270 km/klst ég er bestur þið eruð asnar. Ég keyri hraðast”

Þó það sé ljótt að segja það þá á svona fólk bara skilið að keyra útaf á ofsahraða. Það er að setja annað fólk í hættu með því að gera þetta og ætti því bara að vera utan vegar.

Mistök

14. February, 2005

Ég var að pæla… ef það er veitingarhús. Steikveitingarhús. Og þetta steikhús er með lélega kokka og bara allt í ruglinu. Er þá eina steikin á matseðlinum hjá þeim mistake?

Næsta síða »
© Árni Torfason