30. October, 2004
Fór til Páls e. og Brynju í gær og Sigurjón mætti einnig. Við Páll byrjuðum á því að taka You Got Served á dvd og horfðum. Ansi fyndin mynd verð ég að viðurkenna. Svo eftir myndina byrjuðum við frá byrjun og lúruðum Sigurjón til að halda að við ætluðum að læra nokkur dansspor fyrir kvöldið. Lengsti brandari í heimi held ég. Lærðum samt eitt fáránlega gott move þar sem ég og palli skiptum um úlpu. Ekki frá því að maður taki það við tækifæri á dansgólfum borgarinnar. Eftir þessa fínu mynd skelltum við okkur í Sequence sem er mikið snilldar spil. Ég og Brynja vorum saman í liði og rúlluðum Sigurjóni og Palla upp. Páll var ekki sáttur og reyndi að lemja mig í hvert skipti sem hann tapaði.
Svo var ferðinni heitið á tónleika Jan Mayen. Gestur og Auður bættust í hópinn og þetta voru ansi magnaðir tónleikar verð ég að segja. Hitti þar m.a. Freymar og Einar og Odd og Óskar og að sjálfsögðu var góður hópur sem dansaði ber að ofan við eitt lag. Leiðindar dyraverðir heimtuðu að við færum aftur í. Rassálfar segi ég! Við dvöldum ekki lengi á Leikhúskjallaranum af sökum þreytu og ölvunar hjá sumum. Þannig að það var gott að komast heim undir sæng.
Í kvöld verður það eitthvað rólegt held ég. Kíki jafnvel á Pálus. Verð bara góður edrú á bíl. Össs…
29. October, 2004
Stefna ekki allir á útgáfutónleika Jan Mayen í kvöld á Leikhúskjallaranum?
28. October, 2004
Ef það er rigning þá er mun sniðugra að ganga en hlaupa. Maður verður minna blautur við að ganga en hlaupa. Skemmtilegur fróðleikur verð ég að segja.
27. October, 2004
Ég er búinn að ná mér í kvef. Er mjög duglegur í því. Einn sá allra besti á Íslandi held ég. Ég mætti engu að síður hress klukkan 9 til vinnu. Búið að vera sæmilegt að gera skal ég segja ykkur. Er að fara í eina töku núna klukkan 20. Rennsli á leikriti sem er alltaf hresst. Svo er það að ganga frá og gaman. Annars ætla ég ekki að hafa þetta lengra í bili.
25. October, 2004
Planið mitt að sofa út í dag klikkaði smá. Gleymdi að aftengja símann niðri á mogga þannig að síminn minn hringdi rúmlega 9 í morgun. Þannig að ég horfði á smá sjónvarp en sofnaði svo aftur. Og svaf til tólf. Þannig að ég er temmilega úthvíldur. Var orðinn hressilega þreyttur eftir langa og erfiða helgi. Páll E. ætlar að kíkja til mín bráðlega og við ætlum að taka smá tjill. Hötum ekki tjillið. Hvað verður gert í kvöld er ekki enn ákveðið en ég held að það verði eitthvað fínt.
25. October, 2004
Var að smella inn nýrri könnun. Hún tengist sem sagt síðustu könnun sem hljóðaði svona: “Ætti ég?”
Niðurstöður úr henni getið þið séð hér.
24. October, 2004
Var að velta því fyrir mér með svona stæði fyrir fatlaða. Ef maður þekkir t.d. einhvern sem er í hjólastól og hringir í hann og það kemur í ljós að hann er bara heima hjá sér að tjilla. Jafnvel hann sé að háma í sig hráa pylsu ofan á ristað brauð. Er þá ekki í lagi að ég leggi í stæði fyrir fatlaða? Þar sem hann er hvort sem er ekkert að fara að nota það.
24. October, 2004
Ég var neyddur sjálfviljugur að fara að sofa. Einhver mótsögn í þessu. En jæja kvöldið í kvöld var fínt. Leaves, Maus, Keane, Snillingarnir í Lokbrá, The Shins, The Stills. Fjórða kvöldið í Airwaves hátíðinni góðu búið. Þrátt fyrir að þetta sé mjög gaman þá er þetta nett þreytandi. Að troða sér alltaf fremst. Standa í ströngu að fá að mynda á einstaka stöðum. Sé samt ekki eftir þessu.
Hitti hann Pálus snarölvaðan á Prikinu sem er alltaf hresst. Núna er ég hins vegar kominn heim og Futurama komið í tækið.
Vona samt að ég sofni sem fyrst. Svaf ekki neitt eiginlega síðustu nótt. Annars held ég að ég hugsi óskýrt svona þreyttur. Sem er ekki nógu gott.
23. October, 2004
Var að koma heim af þriðja deginum á Airwaves og það var mikið skoðað og mikill hamagangur. Bang Gang, Dáðadrengir, Skytturnar, Forgotten Lores, mycodenameis:milo, Mínus, Kimono, Dikta og fleira.
Fer á vakt klukkan 9 þannig að ég fæ ekki mikinn svefn sem er held ég bara allt í lagi. Líður vel
21. October, 2004
Er í lagi að ljúga smá ef maður gleður fljótlega eftir lygina?
Annars er það round 2 í kvöld. Iceland Airwaves dagur 2. Það er ansi strangt plan í kvöld sem gengur kannski og kannski ekki.
Eivör Pálsdóttir 20:15 á Nasa
Jan Mayen 20:30 á Grand Rokk
Slowblow 21:15 í Hafnarhúsinu
Slatti á Gauki á Stöng
Sahara Hotnights 0:00 á Nasa
Og helst svona 5 bönd þar inn á milli sem tekst auðvitað aldrei. Þannig að við sjáum hvað gerist. Hver veit nema að ég sjái ykkur.