30. January, 2004
Hehe… gaurinn sem drap og borðaði einhvern tölvufræðing var dæmdur í fangelsi í dag. Þar sem að hann borðaði gaurinn þá fékk hann vægari dóm. Því hann var að fullnægja einhverjum þörfum. Hann fékk 8 og hálft ár. Ætli maður geti fengið dóm fyrir að borða sjálfan sig?
30. January, 2004
Kemur hress inn af kanntinum. Er hún ekki að skilja að dæturnar vilja ekkert með hana hafa. Og þó þær vilji eitthvað með hana hafa þá fá þær það ekki. Hennar mistök að giftast þessum kallbjána þarna. Ætli stúlkurnar séu stundum á msn? Ef einhver er með msn-dótið þeirr þá má viðkomandi láta mig vita.
30. January, 2004
Árni says:
hvað eru menn að braggla?
Sigurjón Guðjóns. says:
borða blýanta
Sigurjón Guðjóns. says:
en þú?
Árni says:
ydda á mér puttana
Sigurjón Guðjóns. says:
kannski að við skiptum….þú færð að ydda blýantinn og ég naga á þér puttana
Sigurjón Guðjóns. says:
?
Árni says:
veit ekki alveg með það
Árni says:
jafnvel að ég fái að ydda blýantinn og þú fáir að borða eigin skít!!!
Sigurjón Guðjóns. says:
DÍLL!!!
Sigurjón Guðjóns. says:
haha….núna tók ég þig
Sigurjón Guðjóns. says:
eða…
29. January, 2004
Núna er úrslitadótið í Survivor Africa. Og einhver tjelling hélt ræðu um hvað þau sem voru í úrslitum væru leiðinleg og mikil fífl og var hálf grátandi. Væntanlega af því að hún tapaði bara. Og svo bað hún þau um að velja sér tölu á milli 1-1000. Gamla konan byrjaði að sína gáfur sína með því að velja töluna 3. Ertu alveg með ullandi kúkinn kona? Auðvitað velurðu 500 svo að þú eigir sem mestan möguleika að vera nálægt réttu tölunni. Þá væri sjálfsagt fyrir hinn gaurinn, Ethan, að velja töluna 4 því þá er hann öruggur með að vera næstur tölunni á meðan talan væri ekki frá 1-3. Sem sagt hann hafð 997 tölur. En neinei… hann valdi töluna 800 og eitthvað. Fólkið þarna veður ekkert í gáfunum greinilega.
29. January, 2004
Er að dunda mér hérna í tölvunni og horfa með öðru auga á Survivor Africa. Þá seríu vann hann Ethan sem er skuggalega líkur Sideshow Bob úr The Simpsons. Getið séð samanburðinn hér.
28. January, 2004
Ég er búinn að vera duglegur að horfa á survivor síðustu 2 daga. Búinn að hafa kveikt á þessu allan daginn á meðan ég hef dúttlað mér í tölvunni. Er núna að enda við að horfa á 2. seríuna sem er að klára. Svo er það bara svefninn. Á morgun er ég búinn að plana nokkuð áhugaverða töku. Sjáum hvernig það gengur.
Annars fékk ég gleðifréttir í dag. Eftir mikla sannfæringu frá Júlla ákvað ég á síðustu stundu að senda inn myndir í forvalið á keppni Blaðaljósmyndara á Íslandi sem verður haldin 28. febrúar næstkomandi. Bjóst við kannski að fá 2-3 myndir sem hefði alveg verið frábært. Fékk að vita í dag að 11 myndir komust inn á sýninguna. Mjög sáttur með það barasta.
Ég ætla annars bara að segja góða nótt núna held ég.
25. January, 2004
Þetta er búin að vera alveg hreint ágæt helgi. Föstudagurinn var nokkuð rólegur bara. Ein taka fyrir v70 sem heppnaðist alveg hreint ágætlega. Svo var það matur hérna heima og smá sjónvarpstjill. Kíkti svo í heimsókn til Pellö þar sem við tókum sjónvarpstjill.
Á laugardeginum kíkti ég í bolta sem var skemmtilegt. Missti af bolta á síðustu stundu stíðasta laugardag þannig að það var kominn fótboltagalsi í mig. Svo var tjékkað á ameríska ídolinu um kvöldið og einn öl sopinn með. Kíkti í heimsókn til Sveinlaugar þar sem Brynja, Kári (sem langar að kyssa Jim Morrison), Hildur Vala og Guðrún voru. Tókum Mr. & Mrs. sem ég og Brynja algjörlega rústuðum. Hitt fólkið átti aldrei sjéns. Svo rúllaði ég í bæinn þar sem ég hitti gott fólk og átti gott tjill.
Í dag er ég ekki búinn að gera mikið. Horfði smá á sjónvarpið og kíkti svo með myndir niður á Verslunarskólablað. Svo er maður að fylgjast með þessum blessaða landsleik. Íslendingar eru undir núna 15-17 og seinni hálfleikur nýbyrjaður.
Í kvöldmat er svo hinn guðdómlegi kjúklingaréttur sem mamma er búin að vera að útbúa í dag. Án efa best matur í öllum heiminum. Það er ekkert planað í kvöld. Jafnvel að maður reyni að lúra einhvern í bíóhúsið. Annars er það bara gott Practice tjill.
22. January, 2004
Ég fór áðan með buxurnar mínar á saumastofu til að láta laga þær. Mér tókst að stíga á þær um daginn þannig að þær rifnuðu langleiðina upp að klofi. Ég var akkúrat á leiðinni í töku þegar það gerðist þannig að ég kom við í 10/11 og keypti mér límbandsrúllu. Og fékk mér svo sæti og tape-aði bara buxurnar saman eins og sönnum karlmanni sæmir. Nál og tvinni minn rass segi ég nú bara. Buxurnar mínar hafa haldist nokkuð góðar þangað til að límið fór að losna og festast við skóna mína og sokkana og allt í flækju bara. Ég er búinn að ætla að fara með buxurna í viðgerð síðustu 5 daga en eins og sönnum karlmanni sæmir þá gerði ég það ekki strax. Sjitt hvað ég er mikill karlmaður! En snúum okkur aftur að saumastofunni. Ég fó rmeð buxurnar áðan og tilkynnti konunni að ég hafi aðeins klúðrað mínum málum og spurði hvort hún gæti lagað þetta. Og hún sagði að það væri nú minnsta málið. Hún var reyndar ósátt við hversu skítugar buxurnar mínar voru. Held að þær hafi ekki farið í þvott síðan ég keypti þær… og það var einhvern tíman í lok ágúst. Svo spurði konan mig: “Hvert er nafnið?” Þar sem ég heiti Árni þá hefði það verið ósköp gott svar en af einhver ástæðu sagði ég “Jósef”. Hún skrifaði niður nafnið og spurði mig svo um símanúmerið sem ég gaf upp samviskusamlega. Maður veit ekki.
20. January, 2004
Hérna eru myndir frá grímuafmælinu sem ég fór í á laugardaginn. Ég er ekki alveg viss um að þessi pósa sé að gera góða hluti hvað varðar karlmennsku okkar Freymars.
20. January, 2004
Ég er ekki frá því að fólk sé algjörlega búið að tapa sér í asnalegu farartæki. Það heitir víst Trikke. Getið séð meira um þetta hér. Fólk þarf svona nett að ýta sér af stað og svo bylgja sér til að komast áfram. Maður er svona sjö sinnum fljótari að synda baksund á malbiki en að nota þessu heimsku græju.